
BHN Rottweiler Adult 12kg
Þurrfóður sérstaklega ætlað fyrir Rottweiler hunda eldri en 18 mánaða.
Hjartaheilsa
Inniheldur amínósýruna tárín og ómega-3 fitusýrur sem styrkja hjartað en einn veikleiki Rottweiler tegundarinnar í gegnum tíðina hefur tengst hjartastarfsemi.
Vöðvamassi
Inniheldur prótein í hlutfalli sem stuðlar að viðhaldi vöðvamassa enda tegundin vöðvamikil og sterk.
Feldur og húðheilsa
Ómega-3 fitusýrurnar efla ytri varnir húðar og stuðla að fallegum og glansandi feldi.
Sérhönnuð lögun
Fóðurkúlurnar eru lagaðar að því að gera hundinum auðveldara að ná þeim upp og hvetur þá til að tyggja.
Innihaldsefni
Sér valin innihaldsefni sem stuðla að heilbrigðum beinum og liðum, þar með talin ómega-3 fitusýrur sem hjálpa til við að halda liðbólgum í lágmarki og glúkósamín og kondróítin sem stuðla að uppbyggingu liðbrjósks.
Prótein
Inniheldur auðmeltanleg prótein (LIP; Low Indigestible Protein) sem stuðla að bættri meltingu og jafnvægi í þarmaflórunni.